Ficus Reykjavík er skapandi markaðsstofa stofnuð af Beggu – ljósmyndara og framleiðanda með yfir áratuga reynslu í greininni. Áhugi minn á efnissköpun kviknaði þegar ég hóf störf sem framleiðandi hjá auglýsingastofu og fann leið til að nýta hæfileika mína á skapandi sviði.
Ég aðstoða fyrirtæki við að efla markaðsstarf sitt með skýrri markaðsráðgjöf, markvissri stefnumótun og auglýsingagerð sem skilar raunverulegum árangri.
Með yfir 10 ára reynslu í framleiðslu auglýsinga hef ég unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir ólík fyrirtæki og atvinnugreinar. Reynslan hefur kennt mér að skapa markaðsefni sem nýtist raunverulega í markaðsstarfi fyrirtækisins, vekur eftirtekt og skilur eftir jákvæð og varanleg hughrif.
Ég vinn með fjölbreyttum hópi verktaka og sérfræðinga á mismunandi sviðum, allt eftir eðli hvers verkefnis. Þannig get ég sett saman rétta teymið í hvert skipti og tryggt faglega og skapandi nálgun.
Við bjóðum upp á heildstæðar lausnir sem lagaðar eru að þörfum hvers viðskiptavinar – allt frá herferðum og vörumerkjauppbyggingu til markaðsráðgjafar, grafískrar hönnunar, ljósmyndunar og myndbandsframleiðslu.